Stig 1 - byrjendur

Stig 1 - Stig 2 - Stig 3 - Stig 4 - Ritun - Taltímar

skoli.eu - Íslenska sem erlent mál - Icelandic as a Foreign Language - skoli.eu

STIG 1 - byrjendanámskeið

lesa, hlusta, tala, skrifa - leikir, málfræði

nám í boði - byrjendanámskeið - nám í boði - byrjendanámskeið - nám í boði

A


B


C


60 stunda
námskeið

    • 10 vikur
    • verkefnavinna
      60x40 mín.
    • 7 taltímar
    • 8 ritunartímar
    • leikjavefur á íslensku
      í 3 mánuði
    • verð: 38.000 ISK
      non-residents in Iceland:55.000 ISK

- Lesið nánar hér fyrir neðan

30 stunda
námskeið

    • 7 vikur
    • verkefnavinna
      30x40 mín.
    • 4 taltímar
    • 5 ritunartímar
    • leikjavefur á íslensku
      í 2 mánuði
    • verð: 25.000 ISK
      non-residents in Iceland: 35.000 ISK

- Lesið nánar hér fyrir neðan

15 stunda
námskeið

    • 5 vikur
    • verkefnavinna
      15x40 mín.
    • 2 taltímar
    • 3 ritunartímar
    • leikjavefur á íslensku
      í 5 vikur
    • verð: 18.000 ISK
      non-residents in Iceland: 24.000 ISK

- Lesið nánar hér fyrir neðan


Námskeið fyrir byrjendur í íslensku

Almennt um nám í Tungumálaskólanum

Til að stunda nám á netinu þurfa nemendur að hafa sæmilega góða nettengingu, orðabók í bókarformi eða nýta sér orðabækur og/eða þýðingarvélar á netinu.
Nemendur þurfa að vera með
MSN-forritið og Skype-símann , en hvorttveggja er ókeypis á netinu.

Mikil áhersla er lögð á að nám í íslensku og íslensk menning og samfélag fléttist saman í fræðandi og skemmtilegt nám og að nemendur þekki betur til íslensks samfélags eftir að hafa stundað nám á skoli.eu. Námsefnið er því oft tengt líðandi stundu og því sem gerist í þjóðfélaginu þann tíma sem námið stendur.
Nemendur geta lagt fram spurningar á ensku, dönsku, norsku, sænsku, þýsku og ítölsku.

Fjarkennslan

Mikil áhersla er lögð á að nemendur læri í byrjun helstu atriði við að læra á íslensku á netinu svo grunnkennsla fari fljótlega að mestu fram á íslensku. Efni námskeiðsins tengist daglegum athöfnum og því að setjast að á Íslandi, m.a. formlegar upplýsingar, vinna, heimili, skóli o.fl. Áhersla á hversdagsorðaforða og hagnýta hluti bæði við að hefja nám í íslensku og því að kynnast og lifa í nýja búsetulandinu.
  • Orðaforði: Mikil áhersla er lögð á að byggja upp orðaforða með myndum og hljóði. Æfingar eru m.a. ífyllingaræfingar, vallistaæfingar, merkja við rétt svör, hlusta og merkja, lesa og svara o.fl.
  • Talþjálfun: Í talkennslu er forritið Skype notað. Nemendur mæta í taltíma á netinu. Í byrjun fá allir byrjendur einkatíma í talþjálfun til að æfa framburð, en þegar líður á námskeiðið eru einnig fundnir fastir tímar á netinu þar sem flestir nemendur geta mætt einu sinni í viku.
  • Ritunarþjálfun: Nemendur skrifa í skrefum eftir ákveðnu kerfi þar sem ný atriði í náminu bætast við í ritunarþáttinn.
  • Diktat: Nemendur skrifa eftir upplestri í hverri viku.
  • Ritun með kennara: Forritið MSN er notað í ritun með kennara. Nemendur fá einkatíma í MSN-ritun einu sinni í viku eftir samkomulagi við kennara.
  • Málfræði: Farið er í fall- og sagnbeygingu út frá þeim orðaforða sem kenndur er. Unnið er út frá eðlilegu máli, þar sem málnotkun og málfræði falla saman. Fjölbreyttar æfingar þar sem gagnvirkar æfingar eru nýttar á margvíslegan hátt til að gera málfræðinámið skemmtilegt og áhugavert.
  • Málfræðihefti á netinu fyrir alla nemendur Tungumálaskólans.
  • Leikjavefur á íslensku, s.s. krossgátur, orðaforðaleikir o.fl., fylgir á námstímanum. Nýtt efni í hverri viku.
  • Efni til útprentunar.

Samskipti á kennsluvefnum

  • Spjall: Á námskeiðsvefnum er boðið upp á lokað spjall nemenda, þar sem nemendur geta spjallað saman eða unnið verkefni sem kennari setur fyrir á spjallþræði. Spjallið er ekki bundið við tíma og því geta nemendur tekið þátt óháð því hvenær þau hafa tíma til að fara á netið. Nemendur geta því kynnst og tekið þátt í sameiginlegum verkefnum þótt þeir séu ekki við tölvuna á sama tíma.
  • Heimasíða: Nemendur fá heimasíðu á skoli.eu. Reiknað er með að nemendur nýti heimasíðuna í íslenskunáminu. Hver nemandi stjórnar því sjálfur hver hefur aðgang að síðunni.
  • Samskipti við kennara: Nemendur geta alltaf sent kennurum tölvupóst. Þeir hafa einnig aðgang að skilaboðakerfi á fjarkennsluvefnum og geta nýtt sér þá boðleið líka. Kennarar leggja sig fram við að svara samdægurs.

Nám og námsumhverfi

  • Námsumhverfið er einfalt og auðvelt er að vinna á kennsluvefnum. Hægt er að velja um íslenskt umhverfi eða enskt.
  • Nemendur hafa aðgang að öllum verkefnum á námstímanum og geta unnið þau eins oft og þeir vilja eða þurfa.
  • Kennari les yfir öll verkefni.
  • Kennari fer yfir öll skrifleg verkefni og sendir nemanda til baka til leiðréttingar.
  • Kennari er með fasta kennslu á netinu í gegnum Skype-símann þar sem m.a. er farið í málfræðiatriði og nemendur geta spurt og rætt um efnið á meðan á kennslu stendur. Þessar kynningar verða einnig á netinu svo nemendur geti sótt þær til að rifja upp eða skoða ef þeir missa af tímanum.
  • Áhersla er lögð á að nám og leikur fléttist saman og því eru verkefni fjölbreytt og mismunandi að gerð og innihaldi.
  • Nemendur hafa yfirlit yfir alla ástundun sína og allan árangur á einum stað í kerfinu.
  • Kennt er eins mikið og hægt er á íslensku, en stundum er íslenskan einnig þýdd yfir á ensku.
  • Nemendur geta spurt kennara á ensku, þýsku, dönsku, norsku, sænsku og ítölsku.

Skírteini

  • Nemendur verða að skila öllum gagnvirkum æfingum.
  • Nemendur þurfa að leiðrétta skrifleg verkefni ef kennari sendir þau til baka til leiðréttingar.
  • Skyldumæting er í taltíma.
  • Skyldumæting er í MSN-ritun.
  • Þeir nemendur sem hafa staðist kröfur skólans um ástundun og árangur fá skírteini frá skoli.eu þar sem tekið er fram hversu marga íslenskutíma nemandinn sótti.
  • Skírteinið gildir fyrir þau sem þurfa að standa skil á 150 stunda íslenskunámi á Íslandi.
  • Skírteinið gildir sem fornám sé fólk að flytja til Íslands innan eins árs frá því að námi lýkur.

Greiðslur

  • Til að hefja nám þarf að greiða fyrir námskeiðið.
  • Hægt er að greiða með greiðslukorti í lok skráningar.
  • Hægt er að greiða inn á bankareikning Tungumálaskólans - smellið hér

Athugið

  • Boðið er upp á próf þegar námskeiðinu lýkur.
  • Nemendur geta tekið námið á lengri eða skemmri tíma eftir samkomulagi við kennara.
  • Viðtalstímar Tungumálaskólans verða á Skype eða í síma og verða þeir tímar auglýstir á vefnum.