Ritun

Stig 1 - Stig 2 - Stig 3 - Stig 4 - Ritun - Taltímar

skoli.eu - Íslenska sem erlent mál - Icelandic as a Foreign Language - skoli.eu

RITUN

lesa, hlusta, tala, skrifa - leikir, málfræði

nám í boði - ritun - nám í boði - ritun - nám í boði

A


B


C


40 stunda
námskeið

  • 10 vikur
  • verkefnavinna
    50x40 mín.
  • 10 MSN-tímar
  • leikjavefur á íslensku í 3 mánuði
  • verð: 20.000 ISK
    non-residents in Iceland: 40.000 ISK

- Lesið nánar hér fyrir neðan

30 stunda
námskeið

  • 7 vikur
  • verkefnavinna
    30x40 mín.
  • 7 MSN-tímar
  • leikjavefur á íslensku í 2 mánuði
  • verð: 15.000 ISK
    non-residents in Iceland: 30.000 ISK

- Lesið nánar hér fyrir neðan

15 stunda
námskeið

  • 5 vikur
  • verkefnavinna
    15x40 mín.
  • 5 MSN-tímar
  • leikjavefur á íslensku í 5 vikur
  • verð: 12.000 ISK
    non-residents in Iceland: 22.000 ISK

- Lesið nánar hér fyrir neðan


RITUN

Námskeiðið hentar nemendum sem eru þokkalega góðir í íslensku en þurfa að bæta ritunarfærni sína. Á námskeiðinu er fjöldi málfræðiæfinga sem tengjast ritunarverkefnunum. Kennari bendir einnig á æfingar í tengslum við ritunarverkefni nemenda, t.d. byggt á villum hjá nemendum eða því að æfingarnar væru góður undirbúningur fyrir einhver ritunarverkefni.

Almennt um nám í Tungumálaskólanum

Til að stunda nám á netinu þurfa nemendur að hafa sæmilega góða nettengingu og orðabók í bókarformi og/eða netorðabók. Einnig geta þýðingarvélar á netinu komið að góðu gagni.
Nemendur þurfa að vera með MSN-forritið og Skype-símann, en bæði forritin eru ókeypis á netinu.

Mikil áhersla er lögð á að nám í íslensku og íslensk menning og samfélag fléttist saman í fræðandi og skemmtilegt nám og að nemendur þekki betur til íslensks samfélags eftir að hafa stundað nám í Tungumálaskólanum. Námsefnið er því oft tengt líðandi stundu því sem gerist í þjóðfélaginu á þeim tíma sem á náminu stendur.
Nemendur geta lagt fram spurningar á ensku, dönsku, norsku, sænsku, þýsku og ítölsku.

Fjarkennslan

  • Lestur: Í hverri viku er lestrartexti sem tengist skylduritunarverkefni. Ýmsir textar sem tengjast íslensku samfélagi og er netið nýtt, s.s. fréttavefir o.fl. við lestur og heimildaöflun hjá nemendum.
  • Ritunarþjálfun: Í hverri viku geta nemendur valið sér viðfangsefni. Það eru föst valverkefni og þarf nemandi að velja 10, 7 eða 5 af þeim, eftir því hversu margra stunda námskeiði þeir eru á. Einnig eru valverkefni í hverri viku og hafa nemendur möguleika á að velja viðfangsefni sjálfir ef þeir vilja þjálfa eitthvað sem kemur þeim persónulega að notum, t.d. umsóknir, sendibréf, greinargerðir o.fl.
  • Diktat: Nemendur skrifa eftir upplestri í hverri viku.
  • Ritun með kennara: Forritið MSN er notað í ritun með kennara. Nemendur fá einkatíma í MSN-ritun einu sinni í viku eftir samkomulagi við kennara.
  • Málfræði: Í tengslum við ritunarverkefnin er bent á málfræðiæfingar sem koma að gagni við að skrifa, s.s. æfingar í viðtengingarhætti þegar fjallað er um óskir og væntingar, lýsingarorðaæfingar við að skrifa lýsingar, nafnorðabeygingar tengdar meginorðaforða við að skrifa o.m.fl.
    Fjölbreyttar æfingar þar sem gagnvirkar æfingar eru nýttar á margvíslegan hátt til að gera málfræðinámið skemmtilegt og áhugavert.
  • Málfræðihefti á netinu fyrir alla nemendur Tungumálaskólans.
  • Leikjavefur á íslensku , s.s. krossgátur, orðaforðaleikir o.fl. fylgir á námstímanum. Nýtt efni í hverri viku.
  • Efni til útprentunar.

Samskipti á kennsluvefnum

  • Spjall: Á námskeiðsvefnum er boðið upp á lokað spjall nemenda, þar sem nemendur geta spjallað saman eða unnið verkefni sem kennari setur fyrir á spjallþræði. Spjallið er ekki bundið við tíma og því geta nemendur tekið þátt óháð því hvenær þau hafa tíma til að fara á netið. Nemendur geta því kynnst og tekið þátt í sameiginlegum verkefnum þó þeir séu ekki við tölvuna á sama tíma.
  • Heimasíða: Nemendur fá heimasíðu á skoli.eu. Reiknað er með að nemendur nýti heimasíðuna m.a. í íslenskunáminu. Hver nemandi stjórnar því sjálfur hver hefur aðgang að síðunni.
  • Samskipti við kennara: Nemendur geta alltaf sent kennurum tölvupóst. Þeir hafa einnig aðgang að skilaboðakerfi á fjarkennsluvefnum og geta nýtt sér þá boðleið líka. Kennarar leggja sig fram við að svara samdægurs.

Nám og námsumhverfi

  • Námsumhverfið er einfalt og auðvelt að vinna á kennsluvefnum. Hægt er að velja um íslenskt umhverfi eða enskt.
  • Nemendur hafa aðgang að öllum verkefnum á námstímanum og geta unnið þau eins oft og þeir vilja eða þurfa.
  • Kennari les yfir öll verkefni.
  • Kennari fer yfir öll skrifleg verkefni og sendir nemanda til baka til leiðréttingar.
  • Kennari er með fasta kennslu á netinu í gegnum Skype-símann þar sem m.a. er farið í málfræðiatriði og nemendur geta spurt og rætt um efnið á meðan á kennslu stendur. Þessar kynningar verða einnig á netinu svo nemendur geti sótt þær til að rifja upp eða skoða ef þeir missa af tímanum.
  • Áhersla er lögð á að nám og leikur fléttist saman og því eru verkefni fjölbreytt og mismunandi að gerð og innihaldi.
  • Nemendur hafa yfirlit yfir alla ástundun sína og allan árangur á einum stað í kerfinu.
  • Kennt er eins mikið og hægt er á íslensku, en stundum er íslenskan einnig þýdd yfir á ensku.
  • Nemendur geta spurt kennara á ensku, þýsku, dönsku, norsku, sænsku og ítölsku.
  • Námsmat er í lok námskeiða þar sem nemendur meta nám og kennslu á skoli.eu. Námsmati er ekki skilað undir nafni og þjónar fyrst og fremst þeim tilgangi að bæta og þróa faglegt skólastarf Tungumálaskólans.

Skírteini

  • Nemendur verða að skila öllum gagnvirkum æfingum.
  • Nemendur þurfa að leiðrétta skrifleg verkefni ef kennari sendir þau til baka til leiðréttingar.
  • Skyldumæting er í taltíma.
  • Skyldumæting er í MSN-ritun.
  • Þeir nemendur sem hafa staðist kröfur skólans um ástundun og árangur fá skírteini frá skoli.eu þar sem tekið er fram hversu marga íslenskutíma nemandinn sótti.
  • Skírteinið gildir fyrir þau sem þurfa að standa skil á 150 stunda íslenskunámi á Íslandi.
  • Skírteinið gildir sem fornám sé fólk að flytja til Íslands innan eins árs frá því að námi lýkur.

Greiðslur

  • Til að hefja nám þarf að greiða fyrir námskeiðið.
  • Hægt er að greiða með greiðslukorti í lok skráningar.
  • Hægt er að greiða inn á bankareikning Tungumálaskólans - smellið hér

Athugið

  • Nemendur geta tekið námið á lengri eða styttri tíma eftir samkomulagi við kennara.
  • Viðtalstímar Tungumálaskólans verða á Skype eða í síma og verða þeir tímar auglýstir á vefnum.


Skoðið sýnishorn af námskeiði (væntanlegt)

SKRÁNING Á NÁMSKEIÐ - SKRÁNING Á NÁMSKEIÐ - SKRÁNING Á NÁMSKEIÐ

A


B


C


50 stunda
námskeið

  • 10 vikur
  • verkefnavinna
    50x40 mín.
  • 10 MSN-tímar
  • leikjavefur á íslensku í 3 mánuði
  • verð: 250 €

Skráning á námskeið
.....í vinnslu

30 stunda
námskeið

  • 7 vikur
  • verkefnavinna
    30x40 mín.
  • 7 MSN-tímar
  • leikjavefur á íslensku í 2 mánuði
  • verð: 180 €

Skráning á námskeið
.....í vinnslu

15 stunda
námskeið

  • 5 vikur
  • verkefnavinna
    15x40 mín.
  • 5 MSN-tímar
  • leikjavefur á íslensku í 5 vikur
  • verð: 120 €

Skráning á námskeið
.....í vinnslu