Talþjálfun

Stig 1 - Stig 2 - Stig 3 - Stig 4 - Ritun - Taltímar

skoli.eu - Íslenska sem erlent mál - Icelandic as a Foreign Language - skoli.eu

TALTÍMAR

lesa, hlusta, tala, skrifa - leikir, málfræði

nám í boði - taltímar - nám í boði - taltímar - nám í boði

A


B


C


8 taltímar

  • 8 taltímar eftir samkomulagi
  • málfræðihefti á netinu
  • leikjavefur á íslensku í 2 mánuði
  • 24 stunda nám
  • verð: 20.000 ISK
    non-residents in Iceland: 40.000 ISK

- Lesið nánar hér fyrir neðan

6 taltímar

  • 6 taltímar eftir samkomulagi
  • málfræðihefti á netinu
  • leikjavefur á íslensku í 2 mánuði
  • 18 stunda nám
  • verð: 15.000 ISK
    non-residents in Iceland: 30.000 ISK

- Lesið nánar hér fyrir neðan

3 taltímar

  • 3 taltímar eftir samkomulagi
  • málfræðihefti á netinu
  • leikjavefur á íslensku í 5 vikur
  • 9 stunda nám
  • verð: 12.000 ISK
    non-residents in Iceland: 22.000 ISK

- Lesið nánar hér fyrir neðan


Talþjálfun

Námskeiðið hentar nemendum sem eru ekki byrjendur í íslensku en telja sig þurfa að bæta færni sína við að tala á íslensku. Í byrjun verður einungis um einkatíma að ræða og kennari tekur mið af kunnáttu nemenda við að skipuleggja efni námskeiðsins.

Reiknað er með að nemendur þurfi að undirbúa sig í tvo kennslutíma (2x40 mín.) fyrir hvern taltíma.
8 taltíma námskeið er 24 stunda nám og 5 taltíma námskeið er 15 stunda nám.

Almennt um nám í Tungumálaskólanum

Til að stunda nám á netinu þurfa nemendur að hafa sæmilega góða nettengingu, orðabók eða nýta sér orðabækur og/eða þýðingarvélar á netinu.
Nemendur þurfa að vera með MSN-forritið og Skype-símann, en bæði forritin eru ókeypis á netinu.

Mikil áhersla er lögð á að nám í íslensku og íslensk menning og samfélag fléttist saman í fræðandi og skemmtilegt nám og að nemendur þekki betur til íslensks samfélags eftir að hafa stundað nám á skoli.eu. Námsefnið er því oft tengt líðandi stundu og því sem gerist í þjóðfélaginu á þeim tíma sem á náminu stendur.
Nemendur geta lagt fram spurningar á ensku, dönsku, norsku, sænsku, þýsku og ítölsku.

Fjarkennsla

  • Fyrir hvern taltíma lesa nemandur texta á kennsluvefnum og er efnið hluti af talþjálfuninni. Þar sem um einkatíma er að ræða geta nemendur auðveldlega komið með tillögur um efni til að ræða eða beðið um efni tengt áhugamálum sínum.
  • Við efnisval verður fyrst og fremst miðað við kunnáttu hvers nemanda og þess sem hann vill æfa sérstaklega. Kennsluefni er m.a. myndir, textar, leikir, tónlist, sögur og framburðaræfingar.
  • Nemendur verða að mæta undirbúnir í taltíma til að fá skírteini í lok námskeiðs.
  • Málfræði: Kennari bendir á málfræðireglur sem hægt er að nálgast í málfræðihefti og æfingar á leikjavef sem gætu hentað nemendum í náminu.
  • Málfræðihefti á netinu fyrir alla nemendur skoli.eu.
  • Leikjavefur á íslensku , s.s. krossgátur, orðaforðaleikir o.fl. fylgir á námstímanum. Nýtt efni í hverri viku.
  • Efni til útprentunar.

Samskipti á kennsluvefnum

  • Spjall: Á námskeiðsvefnum er boðið upp á lokað spjall nemenda, þar sem nemendur geta spjallað saman eða unnið verkefni sem kennari setur fyrir á spjallþræði. Spjallið er ekki bundið við tíma og því geta nemendur tekið þátt óháð því hvenær þau hafa tíma til að fara á netið. Nemendur geta því kynnst og tekið þátt í sameiginlegum verkefnum þótt þeir séu ekki við tölvuna á sama tíma.
  • Heimasíða: Nemendur fá heimasíðu á skoli.eu. Reiknað er með að nemendur nýti heimasíðuna m.a. í íslenskunáminu. Hver nemandi stjórnar því sjálfur hver hefur aðgang að síðunni.
  • Samskipti við kennara: Nemendur geta alltaf sent kennurum tölvupóst. Þeir hafa einnig aðgang að skilaboðakerfi á fjarkennsluvefnum og geta nýtt sér þá boðleið líka. Kennarar leggja sig fram við að svara samdægurs.

Nám og námsumhverfi

  • Námsumhverfið er einfalt og auðvelt að vinna á kennsluvefnum. Hægt er að velja um íslenskt umhverfi eða enskt.
  • Nemendur hafa aðgang að öllum verkefnum á námstímanum og geta unnið þau eins oft og þeir vilja eða þurfa.
  • Kennari les yfir öll verkefni.
  • Kennari fer yfir öll skrifleg verkefni og sendir nemanda til baka til leiðréttingar.
  • Kennari er með fasta kennslu á netinu í gegnum Skype-símann þar sem m.a. er farið í málfræðiatriði og nemendur geta spurt og rætt um efnið á meðan á kennslu stendur. Þessar kynningar verða einnig á netinu svo nemendur geti sótt þær til að rifja upp eða skoða ef þeir missa af tímanum.
  • Áhersla er lögð á að nám og leikur fléttist saman og því eru verkefni fjölbreytt og mismunandi að gerð og innihaldi.
  • Nemendur hafa yfirlit yfir alla ástundun sína og allan árangur á einum stað í kerfinu.
  • Kennt er á íslensku, en einnig er hægt að blanda inn þegar þarf, spurningum og svörum á nokkrum tungumálum.
  • Námsmat er í lok námskeiða þar sem nemendur meta nám og kennslu í Tungumálaskólanum. Námsmati er ekki skilað undir nafni og þjónar fyrst og fremst þeim tilgangi að bæta og þróa faglegt skólastarf Tungumálaskólans.

Skírteini

  • Nemendur í taltímum þurfa að mæta undirbúnir í alla tíma.
  • Þeir nemendur sem hafa staðist kröfur skólans um ástundun og árangur fá skírteini frá skoli.eu þar sem tekið er fram hversu marga íslenskutíma nemandinn sótti.
  • Skírteinið gildir fyrir þau sem þurfa að standa skil á 150 stunda íslenskunámi á Íslandi.
  • Skírteinið gildir sem fornám sé fólk að flytja til Íslands innan eins árs frá því að námi lýkur.

Greiðslur

  • Til að hefja nám þarf að greiða fyrir námskeiðið.
  • Hægt er að greiða með greiðslukorti í lok skráningar.
  • Hægt er að greiða inn á bankareikning Tungumálaskólans

Athugið

  • Nemendur geta tekið námið á lengri eða styttri tíma eftir samkomulagi við kennara.