3. Hreyfing
|
|
Hugmyndakrukkur
Litlir miðar ofan í hugmyndakrukku geta verið uppspretta að margvíslegum viðfangsefnum. Á þessum blöðum eru settar fram nokkrar hugmyndir fyrir krukkurnar og eins fylgja miðar fyrir leikræna tjáningu sem passa vel í litla leiklistarkrukku.
|
Í grænni lautu
Lagið Í grænni lautu sem er eitt af lögum vikunnar er tilvalið fyrir leikræna tjáninu.
Í grænni lautu:
Gamall og góður hringleikur tengist laginu. Einfalda má leikinn fyrir færri leikmenn.
Nemendur syngja lagið og ganga réttsælis í hring allir nema einn sem grúfir sig niður í miðjum hringnum. Áður en leikurinn hefst fær eitt barnið hring sem það geymir í lófa sínum. Um leið og lagið endar rétta allir fram hendur með kreppta hnefa, eins og þeir væru með eitthvað í höndunum (ef þáttakendur eru margir má láta þá rétta fram aðra höndina). Nú fær miðjumaðurinn þrjár tilraunir til þess að finna hringinn Það gerir hann með því að slá létt á hendur hinna, en munið bara þrjár hendur. Ef hann finnur ekki hringinn grúfir hann aftur, en í næsta skipti eru hendurnar hafðar fyrir aftan bak sem slegið var á í fyrra skiptið.
Heimild: Leikjabankinn. |
|