Ónýtt
|
|
Nú er námskeiðið að verða búið og þið eruð búin að vera ótrúlega dugleg! Við erum vissar um að þið klárið allt en til þess hafið þið þessa viku og næstu :) En, við erum að hugsa um að það væri gaman að hittast
| Það sem okkur langar að gera er að fara í teiknileik með ykkur á netinu og spjalla á MSN ef þið eruð með það - og bjóðið foreldrum ykkar með! Hvað er teiknileikur á netinu? Smellið hér til að sjá hvernig þið farið í teiknileikinn á netinu. Munið að þetta er ekki leikur í Íslenskuskólanum lesið því um örugga netnotkun hér
Bætið svo islenskuskolinn@hotmail.com á MSN hjá ykkur ef þið eruð með það og þá getum við spjallað þar. |
| En, spurningin er: Hvort er betra fyrir ykkur að hittast
| laugardaginn 8. apríl EÐA sunnudaginn 9. apríl FRÁ KLUKKAN EITT TIL ÞRJÚ AÐ ÍSLENSKUM TÍMA | Svarið fljótt svo við getum tilkynnt hvenær við hittumst!! Við hlökkum til að hitta ykkur! Gígja og Helga kennararnir ykkar | |