Skynjun, snerting og hljóðfæri

Lesið þetta og smellið svo á verkefnið hér fyrir neðan.

Spurt er:
Ég heyrði það til rússneskt hljóðfæri
sem er spilað á án þess snerta það.
Er það satt og hvernig er það hægt?

Hljóðfærið sem um ræðir kallast theremin og var fundið upp árið 1920 (sumar heimildir segja 1919) af rússneska vísinda- og tónlistarmanninum Lev Sergeyevich Termen, betur þekktur sem Léon Theremin. Hljóðfærið var eitt fyrsta rafhljóðfærið í heiminum og var ennfremur fyrsta hljóðfærið sem hægt var leika á án snertingar.

Theremin-hljóðfærið lítur út eins og hálfgerður kassi með tveimur loftnetum. Spilað er á það tvíhent; önnur höndin stjórnar tónhæð og hin styrk hljóðsins, og er það gert með því færa hendurnar nær eða fjær loftnetunum, allt eftir því hvort hækka eða lækka á hljóðið. Hljómblærinn er allsérstakur; menn geta helst ímyndað sér hvernig theremin hljómar með því hugsa sér "geimveruhljóð" í gömlum bíómyndum. Hægt er nálgast allmörg tóndæmi á síðunni
thereminvox.com

Theremin hefur tóngjafa sem sífellt gefa frá sér tóna af tíðni sem er of til mannseyrað greini hana. Hljóðbylgjurnar sameinast síðan og mynda nýja bylgju eins og er útskýrt nánar í svari við spurningunni
Hvað ákveður nákvæmlega tónhæð hvers tóns? Tíðni þessarar samsettu bylgju er nógu lág til fólk geti heyrt hana sem hljóð.

Loftnetin tvö geta breytt eiginleikum hljóðbylgnanna; annað hefur áhrif á tíðni (sem við skynjum sem tiltekna tónhæð), en hitt hefur áhrif á sveifluvídd (sem við túlkum sem styrkleika hljóðs). sem leikur á theremin getur síðan aftur breytt eiginleikum loftnetanna, allt eftir því hversu nálægt þeim hann fer. Líkja þessu við þau áhrif sem fólk getur haft á óskýrar sjónvarpsútsendingar; standi það á tilteknum stað getur það gert útsendinguna skýrari en standi það á öðrum stað getur það truflað hana. Þannig getur fólk því spilað á theremin án þess snerta það.

Vilji menn kynna sér nákvæmari útlistingu á virkni theremins er þeim bent á síðuna
The theremin: How it works

Heimildir, frekara lesefni og mynd

Heimild: http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=5821


  1. Á hvaða hljóðfæri spilið þið eða hafið þið lært á hljóðfæri?
  2. Ef þið spilið ekki á hljóðfæri - hvaða hljóðfæri mynduð þið vilja læra á?
  3. Smellið hér og svarið





© Gígja Svavarsdóttir 16.11.2006