Fimmtudagur spurningar

Ég er ekki veik en maðurinn minn er veikur.

Hann er með flensu. Það er ekki gaman.

Hann verður að liggja í rúminu

af því að hann er með hita.

Hann er geðvondur og pirraður

af því að honum finnst leiðinlegt

að vera veikur.

Núna ætla ég að hita handa honum te.

Svo fer ég í vinnuna.

Það er gaman í vinnunni á fimmtudögum!

Þá er ég ekki lengi í vinnunni.

Vonandi sofnar Nonni aftur!

  1. Hvaða dagar er?
  2. Er Sigga með flensu?
  3. Er Nonni glaður og ánægður?
  4. Hvert er Sigga að fara?
  5. Hvað ætlar Sigga að gera áður en hún fer í vinnuna?
  6. Afhverju er gaman í vinnunni í dag?