Tónlistarstefnur
|
|
Tón list ar stef nur | "Æ, þetta er allt sami hávaðinn!" "Ekki skil ég í unga fólkinu að geta hlustað á þetta sarg." Á hverjum tíma hafa heyrst dómar og setningar sem þessar. | Unga fólkið fylgist oftast best með nýútgefinni tónlist, hlustar á hana og kaupir, tekur þátt í vinsældavali útvarpsstöðva og sjónvarpsstöðva. Tónlist fylgir líka tíska og það sést best utan á unglingunum og yngra fólki. En, þessar setningar um hávaða og sarg heyrðust líka fyrr á árum þegar þeir, sem segja svona núna, voru sjálfir unglingar að hlusta á nýjustu tónlistina og tileinka sér þá tísku sem henni fylgdi. Það er nóg að líta á Elvis Presley og Bítlana sem komu fram fyrir meira en 30 árum. Þeir sem hrifust af þeim þá eru nú á fimmtugsaldri eða eldri, en foreldrar þeirra voru ekki hrifnir af þessari nýju tónlist! Núna eru þessir unglingar orðnir stórir og eiga kannski unglinga sjálfir sem hlusta á tónlist sem þeim finnst leiðinleg. Svona gengur nú flest í hringi í mannlífinu! | Verkefni - rannsóknarverkefni: Núna þarftu að kynna þér tónlistarsmekk foreldra þinna, og hvað þau hlustuðu á sem unglingar og margt fleira! Á hvernig tónlist hlustar þú mest? Finnst foreldrum þínum líka gaman að tónlistinni sem þú hlustar mest á? Á hvernig tónlist hlustuðu foreldrar þínir mest sem unglingar? Höfðu foreldrar þeirra (afar ykkar og ömmur) gaman af tónlistinni sem þau hlustuðu á þegar þau voru unglingar? Finnst þér það skemmtileg tónlist sem foreldrar þínir hlusta á í dag? Er ákveðin tíska sem tengist þeirri tónlist sem þú hlustar mest á? Ef svarið er já: Fylgir þú þeirri tísku? Og ef þér dettur eitthvað meira spennandi í hug að skrifa um :) EKKI SVARA MEÐ NÚMERUM 1. Ég hlusta á... 2. Pabba og mömmu finnst... SKRIFAÐU SAMFELLDAN TEXTA Ég hlusta mest á popp og klassíska tónlist. Pabba finnst og mömmu finnst.... og svo framvegis. |
RadEditor - HTML WYSIWYG Editor. MS Word-like content editing experience thanks to a rich set of formatting tools, dropdowns, dialogs, system modules and built-in spell-check.
RadEditor's components - toolbar, content area, modes and modules | | | | | Toolbar's wrapper | | | | | | Content area wrapper | | RadEditor's bottom area: Design, Html and Preview modes, Statistics module and resize handle. |
It contains RadEditor's Modes/views (HTML, Design and Preview), Statistics and Resizer
Editor Mode buttons | Statistics module | Editor resizer | | |
| | RadEditor's Modules - special tools used to provide extra information such as Tag Inspector, Real Time HTML Viewer, Tag Properties and other. | | | | | | Mundu að geyma svarið þitt á nokkurra mínútna fresti
|