Spesíur

180 g flórsykur
480 g smjörlíki
600 g hveiti
1 stk. egg til penslunar
möndlur til skrauts

Deigið hnoðað og mótað í sívalninga sem velt er upp úr sykri. 
Gott er kæla deigið í nokkra tíma áður en það er skorið í þunnar sneiðar. 
Pensla og skreyta og baka við 200 ° C þar til kökurnar eru orðnar ljósbrúnar á köntunum.