17. júní

Hér sérðu myndir sem tengjast 17. júní sem er þjóðhátíðardagur Íslendinga.

 

908909

Skrifaðu stuttan texta þar sem þú segir frá því hvenær Íslendingar héldu þennan dag fyrst hátíðlegan.

 

Sautjándi júní

Blómin spring út og þau svelgja í sig sól.
Sumarið í algleymi og hálft ár enn í jól.
Í hjarta sínu fólkið gleðst og syngur lítið lag,
því lýðveldið Ísland á afmæli í dag.

Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei. Það er kominn 17. júní.
Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei. Það er kominn 17. júní.

Jóni heitnum Sigurðssyni færir forsetinn,
firnamikinn árvissan og stóran blómsveiginn.
Fjallkonan í múnderingu prílar upp á pall,
með prjáli les upp ljóð, eftir löngu dauðan kall.

Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei........

Skrúðgöngurnar þramma undir lúðrasveitarleik,
lítil börn með blöðrur, hin eldri snafs og reyk.
Síðan líður dagurinn við hátíðannahöld,
heitar étnar pylsurnar við fjölmörg sölutjöld.

Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei........

Um kvöldið eru allsstaðar útidansleikir,
sunnan koma rándýrir skemmtikraftarnir.
En rigningin bindur enda á þetta gleðigeim,
því gáttir opnast himins og allir fara heim

Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei........

Lag og texti: Haukur Ingibergsson / Bjartmar Hannesson


Þú átt ekki að skila þessu verkefni