Morgunn - Mánudagur

...

Ég heiti Jón og er kallaður Nonni.
Í dag er mánudagur.

Ég elska að vakna snemma.
Ég er alltaf svangur á morgnana
og borða alltaf morgunmat og les blaðið.
Það er rólegt og gott að sitja
og borða og lesa.

.......

Konan mín heitir Sigríður

og er kölluð Sigga.
Hún er oft þreytt á morgnana
og langar að sofa lengi.

...........

En núna er ég búinn að hella á kaffi.
Núna segi ég við hana:

Góðan daginn elskan mín!

Nýlagað og gott kaffi handa þér.

....

....

VERKEFNI

Skrifið orðin sem vantar í textann.



Maðurinn heitir    

Hann er    Nonni.

Hann      að vakna snemma.

Hann er alltaf    á morgnana.

Hann    alltaf blaðið á morgnana.

Það er rólegt og    

að sitja og borða og     

Konan hans Nonna heitir    

Hún er    Sigga.

    finnst gott að sofa lengi.

Hún er oft    á morgnana.

Nonni er    að hella á kaffi.

Hann segir:    daginn

    mín.

Nýlagað og    kaffi

handa    








© Gígja Svavarsdóttir 19.4.2020