Það sést ekki sætari mey

Það lenti í drætti
móðir mín mig ætti
því hún var svo giskið grey

En læknirinn var sóttur
og loksins ól hún dóttur
og það sást ekki sætari mey

En pabbi var sjálfur
á sjónum alltaf hálfur
svo hann gat ekki lengur sagt nei

Fyrst varð hann mjög sleginn
en seinna sagði hann feginn
það sést ekki sætari mey

Sætari mey
sætari mey
nei, það sést ekki sætari mey

Og fyrr en mig varði
hver strákur á mig starði
eins og stelpur á gleym-mér-ei

Þeir fóru skjálfa
og sögðu við sig sjálfa:
hún er sorglega stygg
en mjög trygg - ég hygg
og það sést ekki sætari mey

Ég lærði í bernsku
blikk á fínni ensku
og mín söngrödd var "sweet and gay"

En vestur á landi
ég lenti í hjónabandi
það er sorglegt fyrir siðprúða mey

Hann lagði í sinn vana
elska Ameríkana
svo ég kyssti hann og sagði "okay"

En illt var í efni
hann var óðamála í svefni
Og þá reyndist hann rammíslenskt grey

Íslenskt grey
Íslenskt grey
sem ásældist íslenska mey

En er önnur öldin
ég dansa kát á kvöldin
og þeir kalla mig gleym-mér-ei

Og piltarnir þeir skjálfa
þeir segja við sig sjálfa:
nei, þú sendir mér blossandi koss - þvílíkt hnoss!
því það sést ekki sætari mey






© Gígja Svavarsdóttir 8.10.2005