Aðventusöngur

Texti vikunnar í Íslenskuskólanum tengist því sunnudaginn 28. nóvember er fyrsti sunnudagur í aðventu.

Aðventan er fjögurra vikna tímabil fyrir jól og á Íslandi setja margir upp aðventukrans með fjórum kertum.  Fyrsta sunnudag er kveikt á einu kerti, þann næsta á tveimur og svo koll af kolli.

Kertin bera eftirfarandi nöfn:

  • Fyrsta kertið heitir Spádómskertið
  • Annað kertið heitir Betlehemskertið
  • Þriðja kertið heitir Hirðakertið
  • Fjórða kertið heitir Englakertið

Aðventusöngurinn hér neðar á síðunni er stundum sunginn þegar kveikt er á kertunum.


Aðventusöngur


Við kveikjum einu kerti á
hans koma nálgast fer
sem fyrstu jól í jötu
og Jesúbarnið er.


Við kveikjum tveimur kertum á
og komu bíðum hans.
Því Drottinn sjáflur soninn þá
mun senda í líking manns.


Við kveikjum þremur kertum á
því konungs beðið er,
þótt Jesú sjálfur jötu og strá
á jólum kysi sér.


Við kveikjum fjórum kertum á
Brátt kemur gesturinn,
og allar þjóðir þurfa sjá
hann er frelsarinn


Höfundur texta: Lilja S. Kristjánsdóttir


Trúarbrögð á Íslandi.

Þann 1. desember 2003 skiptust trúarbrögð Íslendinga á eftirfarandi vegu:

  • 86,1% í þjóðkirkjunni
  • 4,5% í fríkirkjusöfnuðum
  • 4,3% í öðrum skráðum trúfélögum
  • 2,7% í óskráðum trúfélögum
  • 2,4 í engum trúfélögum

Heimild: Af vef Hagstofunnar