Tröll

 

Tröllin í fjöllunum
HLUSTIÐ  

Mynd: Brian Pilkinton
Hlunkur Mál og menning, Reykjavík 2000


Orðið tröll er skylt sögninni trylla og í elstu dæmum er það einkum haft um illvættir eða fjölkynngismenn og notað sem skammaryrði.  Mjög snemma er þó farið nota orðið um bergbúa þar sem karlinn heitir einnig jötunn, risi og þurs, en kerlingin flagð, gýgur og skessa.  Þau eru í mannsmynd, en miklu stærri og hrikalegri og stundum talin einhvers konar eldri kynstofn en mennirnir.

     Tröll eru því heiðin og þola illa sálmasöng og hljóm í kirkjuklukkum.  Þau búa langt uppi í hömrum og hellum og lifa mest á dýraveiðum og fiskfangi.  Sum þeirra þola ekki dagsljós og verða steini ef sól nær skína á þau.  Þau eru kölluð nátttröll.

      Tröll eru misjöfn innræti.  Sum eru gri mmar og gráðugar mannætur eins og Grýla en önnur góðviljuð og liðsinna mönnum fyrra bragði.  Oftast eru þau talin heimsk, en nokkur reynast spakvitur.   Hvað sem öðru líður eru þau jafnan drenglynd og standa alltaf við orð sín.  Til er orðið tröllatryggð í íslensku máli og er það mikið hrós.  

     Bæði skessur og tröllkarlar áttu samt til ræna eða seiða til sín mennska pilta og stúlkur.  Ef þau undu sér þar eða tókst ekki sleppa urðu börn þeirra svonefndir blendingar eða hálftröll.

     Mörgum sögum ber saman um karlkyni trölla væri mjög tekið hraka á 16. öld en skessur hafi dáið út á 19. öld.  Byggðir þeirra voru út um allt land og mörg tröll báru nafn.

Aðlagaður texti úr Íslensku vættatali bls.9.
Árni Björnsson tók saman, 
Mál og menning, Reykjavík 1990.

 

Verkefni:

Finnið öll orðin í textanum sem eru yfir tröll.

Skrifið orðin hér fyrir neðan.



 
Þú hefur þegar svarað þessu verkefni, svarið þitt er hér fyrir neðan:

Tröll, trylla, bergbúa, jötunn, risi, þurs, náttröll, skessur, tröllakarlar, hálftröll.


Umsögn um svarið þitt:

Svanlaug Pálsdóttir
2.3.2022

15





© Gígja Svavarsdóttir 6.5.2005