Síðdegi, miðvikudagur 2

--

--

Í dag var ég á námskeiði

hjá Vinnumálastofnun.

Ég er atvinnulaus

og það er fínt að hafa eitthvað að gera

en ég vona að ég fái vinnu fljótlega.

--

--

Ég er svolítið slappur

en ég er ekki veikur.

Ég vona að ég sé ekki

að fá flensu.

Það eru margir með flensu núna.

- En, núna ætla ég

að sækja krakkana í skólann,

skreppa aðeins í búð

og svo heim.

--

--

--

VERKEFNI:

Lesið og hlustið á textann. Setjið svo rétt orð í eyðurnar.



Í dag var ég    hjá Vinnumálastofnun.

Það er fínt að hafa    að gera. 

Ég vona að ég fái vinnu    .

Ég er    slappur.

Ég vona að ég sé ekki    flensu.

Núna ætla ég að sækja    .